Sælir.

Ég er með smá könnun í gangi varðandi hvar þið spilið. Ég ákvað að koma ekki með asísku serverana, en ef þið spilið á þeim þá megið þið minnast á það hér og afhverju þið spilið þar.

Þið sem spilið á EU þurfið ekki mikið að útskýra ykkar mál, en hvað með ykkur á US? Afhverju spilið þið þar og á hvaða þjónum eruð þið?

Ég spila á Bronzebeard, stundum á Earthen Ring og Stormreaver. Búinn að spila með sömu bjánunum í mörg, mörg ár núna og elti þá á US hliðina nokkrum dögum eftir að leikurinn kom út.