Ég er að leita að fartölvu sem getur spilað WoW ágætlega, og mig langar að vita hvort að ein slík sé fáanleg hér á Íslandi.

Auðvitað veit ég að ég ætti að spila hann á borðtölvu en þannig er nú það að aðstæður leyfa það ekki. Netið uppi í herberginu mínu er ekki eitthvað sem ég ætla að treysta til að raida, og til að bæta það þyrfti að bora í gegnum veggi og svaka svaka.

Hingað til hef ég spilað WoW á Toshiba m70 fartölvu sem er orðin allt of gömul og úrelt. Samt náði ég nú að klára mest allt pve content í Wotlk áður en Ulduar kom, en það var frekar slappt í 25 manna raidunum.


Ef þið vitið um slíka fartölvu yrði ég mjög þakklátur ef þið gætuð bent mér á hana, nú en ef engin slík er hér á Íslandi þá væri ekki svo slæmt að fá upplýsingar um hvernig og hverja ég gæti nálgast erlendis.