Hetjuklúbburinn er al-íslenskt guild sem var stofnað í fyrra af nokkrum háskólastrákum sem höfðu gaman af að spila wow og sötra öl. Þetta fór rólega af stað en þónokkrir meðlimir bættust í guildið í nóvember og þá fóru hjólin að snúast. Þetta byrjaði allt í saklausum Kara runs og núna erum við stórt og öflug guild með yfir 60 meðlimi. Eftir að hafa gengið í gegnum meðlimaskort og nokkur pugruns erum við núna komnir á gott ról og búnir að klára allt raid content í WOTLK án neinnar hjálpar. Við ætlumst til þess að meðlimir sýni þroska og umburðarlindi gagnvart öðrum ásamt því að geta spilað characterinn sinn rétt. Eitt að okkar aðal markmiðum er að halda uppi guildi þar sem fólk getur mætt í raid og haft gaman af, ef það eru einhver leiðindi eða óviðeigandi fíflaskapur á vent þá tökum við hart á því. Við erum með DKP kerfi eins og er. Ef þú hefur áhuga að sækja um þá geturu skoðað hvað okkur vantar hér að neðan eða sótt um samt sem áður, þar sem að við skoðum allar umsóknir.

Erum að Recruita eftirfarandi:

Priest(Holy)
Priest(Shadow)

Sendið umsóknir á hk.maniac.is
Micro