Erum 4 atm með einn vara sem ætlum að spila clan wars 1-2 kvöld á viku. Vantar spilara sem hentar best að spila support en ýmislegt annað kemur til greina.
Ætlum okkur einungis að spila clan wars nokkrum sinnum á viku ekki að sigra heiminn.
Ætlumst til metnaðs og áhuga af þeim sem taka þátt í þessu með okkur.
Þeir sem hafa áhuga sendi mér pm eða svari hér, ef ég svara ekki þá fer það ekki lengra.
Eins og ég segi þá eru þetta 1-2 kvöld á viku, með því erum við að reyna að laða að okkur góða spilara sem eru ekki alveg tilbúnir í að vera á hverju kvöldi, einnig að hafa skipulagða leiki þar sem við ákveðum tíma til að spila fyrir hvert skipti.

Þótt þú hafir ekki beint spilað með mér eða okkur þá ekki hika við að hafa samband, erum allir að koma að þessu með sama markmið. Bítum ekki…nema kannski kiddi

Hafið samband hér eða í pm.