Sælt veri fólkið.
Vil ég byrja á því þakka fyrir mig til þeirra sem voru í þessari frábæru röð í Max Holtagörðum (þó sumir hafi kannski verið full ákafir fyrir minn smekk ;) ) en nú eru flestir allavega komnir með þennan einstaka aukapakka í vasann og verður sérdeilis gaman næstu vikurnar að koma sér upp í 80 í þessu sem verður ekki betur lýst en veislu fyrir augun.
En þá að efninu, við í Skemmileggja Horde guildi á Grim Batol Europe erum alltaf að leita að góðum horde spilurum til að safnast saman undir einu flaggi í baráttunni við the scourge og lich king og allt sem hann kann að senda á okkur, þeir sem þekkja til eru nú þegar varir um þennan póst: http://www.hugi.is/blizzard/threads.php?page=view&contentId=6144253 og þar má sjá svona það helsta og einnig að sjálfsögðu á skemmileggja.guildomatic.com (sem er enn í vinnslu). En það sem bæst hefur við er að búið hefur verið til Promo video sem við vonumst til að allir hafi prýðilega gaman að og er þessi þráður, þó langur sé orðinn aðalega til að vekja athygli á því. En góð mynd segir meira en þúsund orð og vona ég að ykkur líki.

http://www.youtube.com/watch?v=TYP4CMfNtVs

Með kveðju
Officers í Skemmileggja
Skass - Alcasan - Cybermage - Klobbi - Bóner

Bætt við 13. nóvember 2008 - 09:36
Ég gleymdi einum Officer =/ en það er Apathý og er indælisdrengur, við skulum vona að mér verði fyrirgefið þetta hliðarspor =)
Alcasan