Einn daginn, og nú er ég í miðju Dibbatímabili mínu, vaknaði ég, opnaði augun og sagði “Ég ætla að ná level 99 í Diablo 2!”.
Ég leitaði mér að upplýsingum og ákvað að vera Amazon class og sub-class sem gengur undir nafninu javazon. Semsagt nota javelin með Lightning Fury, Plague Javelin og Jab.
Þetta gekk ágætlega nema hvað ég vissi að þetta myndi vera erfitt þar sem ég gat bara spilað í single player. Engin nettenging hjá mér….

Til að gera langa sögu stutta þá náði ég upp í level 75 áður en ég fékk gjörsamlega upp í kok af þessu.
Og mín spurning er: Hversu langt hafið þið komist með kall í single player? Og ef þið hafið náð í lvl 99, hvernig í ósköpunum nenntuð þið því?

Zedlic