Ég hef verið að íhuga að koma upp íslensku Blizzard samfélagi. Það mundi keyra á vBulletin, en það spjallborðskerfi er nokkuð svipað því kerfi sem notað er á psx.is.

Ég hef þegar sérsniðið útlit fyrir síðuna og mun ég brátt geta útvegað sýnishorni af því hvernig síðan mundi líta út.

Þetta samfélag yrði aðeins ætlað Blizzard leikjum og væntanlega aðeins þeim sem enn eru spilaðir af þrótti: Warcraft III ( m.a. með sér DotA spjallhorni ), StarCraft I, Diablo II og World of Warcraft og síðar StarCraft II.

Er einhver markverður fjöldi sem gæti hugsað sér að vera fastagestur á síðu sem þessari?