Ég er hérna með ónotað World of Warcraft Battlechest sem ég vil selja. Þar sem ég er ekki að selja notaðan account þá ætla ég að leyfa mér að posta þessu.

Svo er mál með vexti að ég fékk þetta sem síðbúna afmælisgjöf og ég hafði ekki hugmynd um hvað þetta var, þegar frænka mín sagði að ég ætti þetta ekki þá aulaðist ég til að taka plastið utan af vörunni. Sem ég get nú ekki skilað.

Þetta inniheldur WoW og Burning Crusade pakkann, með tilheyrandi CD keys og öllu. Svo fylgja líka einhverjar tvær bækur með sem ég hef ekki skoðað, þannig ég get ekki upplýst ykkur um það.

http://www.bt.is/Leikir/PC?SKU=WOWBCCDR - Þetta er linkur á vöruna, eins og þið sjáið kostar hún 4990. Ég ætla að setja 4000 kr á hana, þar sem þetta hefur jafnt og ekkert verið snert.

Áhugasamir mega senda mér einkaskilaboð með tilboðum.