Já ég hef svona verið að lappa upp íslensku guildi þar sem flestir “raiding times” hjá guildum bara henta ekki íslandi, að byrja að raida klukkan 5 og þurfa síðan að taka sér “pásu” til að fara að éta etc það bara gengur ekki upp.

Allavega það sem ég var að pæla ef 25 ACTIVE íslendingar ALLIANCE gætu hugsað sér að hrúgast saman á einn realm og við stofnum “hardcore” raiding guild helst uppá hraðan progress.

Sjálfur hef ég reynslu af öllum bossum upp að Felmyst sem er í Sunwell en þetta er allavega hugsun, feedback wanted. Kv Baldone@Twisting Nether.