Jáh, las um þetta í einhverjum þræði hér neðar þar sem bent var á http://www.sk-gaming.com/content/15500-Smart_fix_allows_you_to_drop_your_ping_by_150 sem á að gera manni kleift að lækka MS-ið svo um muni. Ég reyndi þetta og hef alltaf verið að rokka á milli 200-300 en er núna á bilinu 150-190 þannig þetta breyttist smá. En fólk er að tala um að það hafi misst frá 200 niður í 70. Er mögulegt að einhver af ykkur viti hvers vegna þetta sé svo mjög mismunandi frá manni til manns(er btw að nota windows XP).

Tók eftir því þar sem maður breytir þessu í regedit og gerir þetta NEW value dæmi, fer í modify og setur í 1, þá er um tvennt að velja ; hexadecimal og decimal. Hexadecimal er það sem er sjálfkrafa valið, er einhver munur á þessu tvennu?

Bara pælingar. Ef einhver hefur gert þetta og lækkað pingið sitt alveg frá 200 niður í 70 má hann endilega segja svo og hvort það hafi verið e-ð annað sem sá sami gerði :)
____________________________