Immortal Technique er 15 daga gamalt guild á Deathwing PvP servernum. Við setum okkur markmið að vera búnir að downa Illidan fyrir komu aukapakkans WotLK og því þörfnust við fleiri meðlima.

Progress hingað til er ekki mikið því miður vegna skort á meðlimum en engu að síður eitthvað progress. Erum búnir að ná að fylla eitt 25-man raid og þá var ferðinni haldið í Gruul. Þar hlupum við inn sumir ekki með neina reynslu aðrir með meiri. Komist var að High King Maulgar og gekk það illt í fyrstu vegna skorts á forystu. Svo kom það að einn ákveðinn aðili tók að sér forystuna og þá tókum við hann niður á, tjaa kannski ekki mettíma en allavega tekinn niður. Svo var ferðinni heitið í Gruul. Fyrsta tilraun fór hann niður í 15%. Önnur tilraunin var bara grín. Þriðja tilraun fór hann niður í 5% en þá þurftum við að kalla raidið af.

Erum núna með 2 karazhan hópa. Annar þeirra er búinn að cleara allt kara, hinn byrjaði í gær og eru komnir á Shade of Aran.

Einnig höfum við tekið niður Nalorakk fyrsta boss í ZA.

Við leitum ólmir eftir fleiri meðlimum og einsetjum okkur að eiga auðvelt með að fylla raid og geta raidað alltaf þegar við ætlum okkur að raida. Ef þið eruð á servernum eða viljið migrate'a þá gerið þið bara whisper til einhverra officera okkar (Asninn - Enso - Dexterr - Dolph - Alladin - Fönix) og þið fáið inngöngu. Einu skilirðin er að þú ert ekki algjör hálfviti með enga Social Skills og að þú sért íslenskur.

Takk fyrir mig og vonast til að sjá sem flesta ykkar.
01101100 01101111 01101100 00111111