Málum er þannig hátta að ég ákvað að byrja að spila wow aftur eftir þónokkuð langa pásu. Hingað til hef ég alltaf keypt áskrift á formi Gamecards. Núna er ég kominn með visakort og ákvað því að prufa að borga með því í þetta skiptið. Ég borgaði í gær og inná accountmanagement síðunni stendur active en af einhverri ástæðu kemst ég ekki inn á accountinn minn (s.s. ingame kemst alveg á inna account management síðuna).
Á áskriftin að koma strax inn eða er einhver bið, ef svo er hversu lengi þarf maður að bíða?