Eftir að ég fékk mér eitt addon þá hefur Wow og tölvan mín virkað frekar hægt hjá mér. Ég er búinn að deleta addoninu og scanna tölvuna með Spybot - Search and Destroy, en mig sárvantar eitthvað vírusleitar forrit.

Er einhver sem getur bent mér á eitthvað frítt forrit sem hægt er að nálgast á netinu eða linkað mig inn á einhverja góða síðu sem gerir svona online scan fyrir mann?

Ps: Einhver gaur hérna sagði að Spyware Doctor væri góður þannig að ég náði í hann. Hann fann bunch af drasli í tölvunni en vildi ekkert gera fyrr en ég væri búinn að kaupa hann á netinu.