Komið þið sæl og blessuð.

Ég ætla að þjappa þessu aðeins betur í ykkur.

Allt brask með accounts er bannað, þið eigið þá ekki og ekki halda að þið komist upp með það að skipta við aðra eða selja hér.

-

Það eru spurningakorkar hérna fyrir neðan. Öllum spurningaþráðum á vitlausum stað verður eytt án fyrirvara.

-

Hefurðu mikla þörf á að tjá þig? Ef já, til hamingju með það. Hugi er tilvalinn staður til að tjá sig á siðferðislegan hátt. Tjáðu þig eins og þú vilt, en það er algjör óþarfi að setja inn sama póstinn oftar en einusinni, póst með sama efninu aftur og aftur eða einfaldlega pósta með engu nytsamlegu í. Það er verið að banna hægri/vinstri fyrir þessi brot.

-

Er notandinn fyrir ofan þig algjört tröll? Hár á höndunum og allt? Ef svo er, andaðu rólega og lestu það sem þú ætlar að pósta tvisvar. Er svar þitt of gróft? Er svar þitt of ógeðslegt? Er svar þitt of barnalegt? Er svar þitt… o.s.frv. Reynið að haga ykkur héran, ef þið hafið þörf til að rífa kjaft og haga ykkur eins og börn, þá er Hugi ekki staðurinn til þess.

-

Það er (næstum) aldrei gaman að banna fólk, en við hikum ekki við það. Það er stundum bannað við fyrsta brot og stundum bannað við annað. Það fer eftir brotinu. Ef þú telur einhvern þurfa bann, talaðu þá frekar við okkur (Mig, Slingthor eða Gspeed) í staðinn fyrir að öskra það yfir hina - til þess erum við hérna.

Það er búið að banna a.m.k. 4 einstaklinga á áhugamálinu í dag og ætli það verði ekki svipað á morgun? Þetta er óttarlega há tala og væri gaman að sjá hana lækka.

Kv, Steini.