Hehe ég þurfti að senda inn 2 pósta og ég hef greinilega verið búinn að skrifa titilinn á guild póstinum sem ég ætlaði að senda en skrifað svo um BA verkefnið mitt. Þannig ætli ég verði ekki að hafa titillin um Ba verkefnið mitt núna og skrifa um guildið mitt.

Þannig er mál með vexti að ég er GM í guildi sem kallast Addiction á server sem heitir Wildhammer og erum við horde. Ég byrjaði eins míns liðs að safna saman fólki til að mynda gott og skemmtilegt raiding guild því það verður að segjast að flest guildin þarna á wildhammer eru frekar illa rekin og fá að gera góða hluti.
Guildið er líklega tæplega eins og hálfs mánaða gamalt og höfum við vaxið ágætlega erum tæplega 70. Við leggjum áherslu á að fá skemmtilega einstaklinga sem hafa góðan móral og eru hjálpsamir. Góður gear og raiding reynsla er ekki skylda en það er góður bónus. Ástæðan fyrir því að við veljum að skoða persónuleika einstaklingsins heldur en gear og reynslu er sú að epic hlutir koma þegar maður er byrjaður að raida og sömuleiðis lærir maður jafnt og þétt en það er erfiðara að breyta persónuleika einstaklingsins.
Einnig hefur maður séð allt of mörg guild liðast í sundur útaf því þeir hafa tekið einstaklinga sem eru einungis í fjarsjóðsleit af epic en hafa rotin persónuleika og gefa ekkert af sér til guildisins.
-Við fórum í fyrsta guild runnið í gær 16/04/2004 og það gekk framar vonum.
Eftir wipe á fyrsta pulli var ekki stoppað fyrr en á öðrum boss.

Attumen the Huntsman var tekinn frekar auðveldlega niður í fyrstu tilraun með að mig minnir ekkert dauðsfall.
Við brunuðum mjög hratt og að Moroes og náðum að gera 3 tilraunir en niður fór hann ekki.
það var þó gaman að sjá á þessum 3 tilraunum að þær urðu alltaf betri og betri og mikill munur á fyrstu og þriðju tilraun. Þannig ég er vongóður um að hann fari fljót niður.

En til að draga þetta saman:D
Þá er guldið að hugsa um að bæta aðeins við sig og var ég að velta fyrir mér ef einhver langaði að taka þátt í þessu með okkur. það eru 3 aðrir íslendingar í guildinu og mórallinn er sá besti sem ég hef séð í guildi.

Ég er með ákveðna classa í huga sem ég vil fá en ég er svo sannarlega tilbúinn að hlusta á allar umsóknir.
Ef þú ert skemmtilegur karacter, hjálpsamur með góða framkomu þá höfum við áhuga á að heyra frá þér:D

Kv Neró GM of Addiction