Góðan daginn.

Undanfarna daga hafa fæðst umræður hér á áhugamálinu, þar sem þursar vilja vita allt best og verða sálfræðingar. Það er ekki tekið vel í þannig efni hér og er þeim sem vilja eitthvað um málið segja bent á Morgunblaðið. Þar er dálkur sem kallast Víkverjinn og er ykkur velkomið að bögga þá.

Þetta áhugamál er hér fyrir þá sem vilja stunda það og eiga þeir þann rétt að geta notað vefinn í friði fyrir þeim sem vilja láta eins og börn, þursar og tröll.

Brot sem slíkt þýðir einfaldlega bann. Svo verða ‘æjjj sorry kmr ekki firir aftur lofa því skomm !!!!!1’ (semsagt afsökunarbeiðnir) hunsaðar. Þetta eru reglur og þær eru ekki skraut.

Takk.