Núna eru að koma inn með ákveðnu millibili þessir blessuðu korkar um fólk sem finnst að það hafi fallið fyrir þessari svokallaðri wow fíkn og hvernig það hefur annað hvort eyðilagt líf þeirra eða að þeir séu búnir að vera edrú í einhvern sérstakan langan tíma(sumum næir ekki einu sinni að gera einn kork.)
Allavega núna bið ég stjórnendur þessa áhugamáls að taka á þessu máli þar sem stærri og stærri hluti umræðunnar á þessu áhugamáli er ekki um warcraft, diablo, starcraft eða aðra leiki frá blizzard heldur um það að fólk sé háð töluleikjum og er wow þá sérstaklega valinn vegna þess hve vinsæll hann er.
The Few, the Proud, the Engineers