Get ekki setið á mér með þetta. Þursaskapur er með ólíkindum á þessu blessaða áhugamáli! Ekki hægt að fara í gegnum kork án þess að sjá einhverskonar fáfræði sem særir, kynþáttahatur eða niðurlægingarorð yfir fólk sem er ekki jafn heppið og ég og þú notað til að “koma með skot á einhvern”.

Heimskan og fáfræðin í ákveðnum einstaklingum fer svo innilega í mig að ég get ekki setið á þessu lengur.

Stjórnendur. Ég skora á ykkur með þessum korki að taka refsilega á notendum á huga sem virða ekki reglurnar gegn þursaskap. Hverjum er ekki sama um “Fyrstur” þegar fólk er virkilega að vera rakkað niður þegar það er að reyna að deila áhuga sínum hlut á áhugamáli. Þetta er nú bara ekki hægt! Vilhelm siðaði mig til þegar ég var að byrja á huga, það þarf einhvern til að siða þessa nýgræðinga til. Það er allt í lagi að vera með skoðanir, og grófar skoðanir. En þegar tilgangurinn er bara til þess að niðra fólk, þá getur maður bara alveg eins sleppt því.

Takk fyrir mig,
með von um batnandi áhugamál

Gísli.