Halló.

Ég hef ákveðið að skrifa niður það sem skeði fyrir mig í dag (soldið skondið). Skandall gerði svona dæmi hér fyrir ekki svo alls löngu, og mér datt í hug að herma bara eftir honum og gera það sama. Ég hef líka ákveðið að skýra söguna =D


Ég elska Resto Shamans

Í gær, á mánudaginn, ef ég hef talið rétt, var ég búinn að mæna dágóðan slatta af Mithril Ore. Nýlega hafði ég skipt yfir í Mining og Engineering frá Skinning og Leatherworking. Ég var á ca. 215 þegar ég kallaði í félaga minn og skipaði honum að logga warlock altinn sinn (sem heitir því frábæra nafni Imppimp) og búa til Gnomish Mind Control Cap handa mér. Ég var með flest öll mats og allt svoleiðis stuff þannig það var ekki eftir neinu að bíða heldur bara drífa sig niður að forge og byrja að lemja.

Ég duelaði síðan við hann einu sinni til að prufa þetta og komst að því að ég gat ekki verið með pettið úti og notað þetta. ÖMURLEGT! En jæja. Dismiss pet takkinn minn er ekki það langt í burtu. Líklega sniðugra í sumum tilvikum að vera með brutal Tauren Warrior pet heldur en einhvern auman kött. En ekki notaði ég það mikið meira þann daginn.

Í dag var ég síðan búinn að hækka Engineering skillinn minn nógu mikið til að búa til Goblin Rocket Helmet. Ég var miklu hrifnari af þessu tæki, einungis vegna þess að ég get notað pettið mitt og þetta á sama tíma, ég get notað þetta í combat og þetta stunnar gaurinn í 30 sek, en MC cap virkar (eins og allir vita!) bara í 20 sek. Þó að það sé reyndar aldrei hægt að taka þær tímalengdir alvarlega.

Síðan skeði það í dag, þegar ég var í mínu daglega honor farmi að Rocket Helmetinn minn er á cooldown. Þá skipti ég yfir í MC cap og dismissaði pettinu mínu. Shadowmeldaði, rjómaslakur, og beið í flagroom eftir ljótum hordes að gera enn eina misheppnaða tilraunina til að ná flagginu. Allt í einu poppar rogue í trap með flaggið upp á skjáinn hjá okkur. Heheh, ég sem hélt að detect traps væri passive núna. Jæja, við 3 kumpánarnir í defence stútum honum fljótlega og erum að koma okkur aftur fyrir þegar ég tek eftir þessum Shaman dútla sér eitthvað uppá Balcony.

Ég stend eitthvað útá miðju gólfi eins og algjör álfur að eitthvað að reyna að multi shotta hann en hann er aldrei í line of sight. Fucking crap hugsa ég, hlýt að ná honum fyrr eða síðar en allt í einu BOOM STARFIRE! og stun. Ég bara whaaat? ahh balance druid.. lol.. Nei nei, fireball og serpent sting (auðvitað moonfire líka) og allur pakkinn, ég bara shit fucking hell og hleyp desperate inní hitt herbergið sem leiðir útí ramp og graveyard, að reyna að bjarga eigin skinni. Feigna Death og ætla að setjast niður til að fá mér að borða.

Áður en lengra er haldið ætla ég að segja ykkur frá þessu macroi sem ég er með, bindað við Mouse Button 4. /script PetAttack() , mjög hentugt þar sem ég spila Hunter, og ég býst við að warlockum þætti þetta þægilegt líka. Svo er hægt að bæta við /cast Hunter's Mark(rank x) ef menn vilja. Sem er þægilegt ef maður er að levela, grinda eða bara eitthvað. Og jújú, ég veit alveg að það er líka hægt að binda Pet Attack við takka.

En áfram með smjörið. Ég Feigna Death, sé 3 dots á mér, serpent sting, fireball og moonfire. Er með ca. 30% hp þegar hér er komið við sögu. Ég byrja að éta, sest niður rétt hjá inngangnum þannig ég sé ágætlega inní flagroom. Kemur ekki helvítis shamaninn vappandi sæll og glaður og ætlar svo sannarlega að næla sér í feitt honor kill þarna með bara einu earth shocki eða eitthvað. Nei. Ég hélt sko ekki. Hoppa strax upp, dots nánast farnir af mér, en lífið mitt bara búið að minnka ef eitthvað er… Fíra Mind Control Helmet um leið og ég get. Sem betur fer var hann ekki í combat og Gnome tæknin virkar bara ágætlega í þetta skiptið.

Ég sæll og glaður með að vera ekki frost shockaður til helvítis enn eina ferðina, hugsa með mér að ég geti ekki bara sest niður og étið með þennan shaman hliðina á mér þannig ég færi mig örlítið nær flagroominu og kíki hvað er að gerast þar. Þá er bara svaka action í gangi þar. Druid kominn að stela flagginu, mage kominn niður og einhver plebba hunter að snæpa allt niður af þakinu. Ég targeta strax druidinn og spamma pet attack macroið á fullu þar sem þessi shaman virkar núna eins og pet hjá mér. Nei nei nei byrjar gaurinn bara ekki að heala mig á fullu! Hah! Ég hélt í alvörunni að ég myndi gjörsamlega springa úr hlátri. Eftir leikinn skoðaði ég combat log og sá að hann healaði mig fjórum sinnum. 3 stutt heal og eitt langt, man ekkert hvað þau heita. En það sniðugasta var líklega að 3 þeirra voru crit heal. Hehehe!

Eftir að MC cappinn hætti að virka trappaði ég hann bara þangað til við höfðum drepið hina gaurana og drápum hann í flýti. Þá voru komnir fleiri Alliance að hjálpa okkur og við unnum leikinn fljótlega eftir það. Síðan Mind Controllaði ég líka rank 14 warrior seinna um daginn. En hann var bara eitthvað slappur, ekkert gaman að því..


Ég vona að einhver hafi skemmt sér við að lesa þetta, ég veit fyrir víst að þetta var án efa það skemmtilegasta sem hefur nokkurn tíman gerst fyrir mig í World of Warcraft.

=DDDDDDDDDDDDDDDDDDDDD
indoubitably