Svolítið fyrir ykkur World of Warcraft spilarana sem nenna ekki að lýta á nýjar greinar.
Jæja, ákvað að gera eitthvað til að lífga aðeins uppá áhugamálið.

Reglurnar eru þær að þið takið screenshot úr einhverjum leik frá Blizzard og sendið það inn, þið verðið að skýra myndina ykkar og skrifa fyrir aftan nafnið “- Myndakeppni”
Myndin verður að vera tekin í leiknum sjálfum og ef stjórnendur / notendur huga verða varir við að það hafi verið fiktað við myndina í photoshop eða sé tekinn af annari heimasíðu þá verður henni auðvitað eytt út.

Þið hafið til 23:59 31.Maí til að senda inn og þá verða allar myndirnar samþyktar í einu, þar að auki verður sett upp könnun með nafni allra myndanna og þið kjósið það sem ykkur finnst vera flottasta myndin.

Myndin má vera af hverju sem er.
Gangi ykkur vel :-)