Jújú ég er nýr og allt það en mig langar að biðja ykkur kæru notendur, að koma með ykkar hugmyndir um það hvernig má bæta áhugamálið, bara segið það sem ykkur dettur í hug, ég vil engin rugl svör því ég ætla að fara vel yfir hvert svar og gá hvort að það eru ekki einhverjir hérna með góðar hugmyndir sem við gætum þá komið í framkvæmd.
Þið getið komið með hugmyndir um t.d reglur, myndastaðla og bara hvað sem ykkur dettur í hug, en eins og ég segi, ég vil ekki fá nein rugl svör eins og “fyrstur” (veit að það er xtra freistandi núna þar sem ég nefndi það) :P

Bara vona að það komi góðar hugmyndir, ástæðan fyrir því að ég setti þetta á wow er til þess að þetta fái sem mest viðbrögð og að sem flestar skoðanir komi í ljós :)