Ég var að gera quest með einhverjum gaur sem fór í taugarnar á mér því hann var alltaf eitthvað að væla og rífa kjaft yfir því að ég bakkaði hann ekki nógu vel upp í bardögunum. Allavega við vorum að drepa Hordes og áttum að drepa einn aðal horde sem var með eitt sem við þurftum. Við fundum hann og réðumst á hann, en þessi “félagi” minn dó og ég var einn eftir og tókst að drepa horde-ið. Þá sagði ég honum að gera mig að group leader og hann gerði það eftir smá hik. Ég gerði mig að master looter og tók itemið og fór svo úr groupinu og skildi hinn gaurinn gaurinn eftir þarna hahhaha og náði sjálfur í verðlaunin fyrir questinu.

Hann varð svo fúll að hann fór að whispera allskonar svívirðingum að mér og sagðist hata mig og ég væri fáviti og fór að hóta mér lífláti. Hann hélt þessu áfram lengi þangað til ég sagði bara “OK, Im sorry I tricked u, how can i make it up 2 u” þá svaraði hann “if u give me 50 silver i will forgive you”

Ég sagði OK hittu mig á SW (hann var LENGST Í BURTU) og hann þurfti að ferðast alla leið og borga slatta í Griffon ride. Ég beið og þegar hann kom sagði ég “I aint paying u shit sucker” og hljóp í burtu. Hann öskraði eittthvað með caps á og svo sá ég að hann hafði loggað sig út og hef aldrei séð hann inná aftur ég er hræddur um að hann hafi kannski brotið tölvuna sína í brjálæðiskasti.