Fyrsta smásagan mín, here goes…

Arkidas labbaði hljóðlega um skóga Ashenvale, honum hafði verið falið verkefni, að gæta skóganna fyrir orkum. Hann rölti niður stíginn með sínu trygga gæludýri sem hann hafði skýrt Joey. Allt í einu heyrði hann dauft högg í fjarska, gat það verið? Já það var vesalegur orka vinnumaður að höggva tré. Arkidas fann fyrir reiði inní sér og tók upp bog sinn og ör. Hann miðaði vandlega og sleppti örinni. Hún flaug hljóðlega í gegnum loftið og lenti í hnakknum á orkanum sem féll samstundis á jörðina. Hann gekk að líkinu og faldi það á milli trjánna, hann vissi að það væri setstöð fyrir orkanna nálægt. Hann hlustaði vel og hugleiddi, fór í samband við töfra skógarins. Hann gat séð þá, hálfum kílómetra í burtu. Hann hljóp af stað og fyrr en varir var hann kominn að setstöðinni. Þarna voru þrír verðir sem gættu viðarbyrðanna. Af og til sá hann vinnumenn koma með við. Hann beið þangað til að rökkvaði og læddist hljóðlega að einum varðarins sem var á varðbergi á meðan hinir tvir sváfu. Hann stóð fyrir aftan hann og tók stóra tveggja handa bardagaexi af bakinu og hjó hann í bakið. Orkinn öskraði af sársauk og hnígféll. Öskrið vakti hina tvo og þeir fóru eftir öxunum sínum, áður en einn náði sinni var gæludýr Arkidas fljúgandi í loftinu í áttina að honum. Hinn náði hins vegar exinni sinni og hjó í áttina að Arkidas. Hann fékk litla skeinu á vinstri handlegginn sinn og kreppti gripið um exina sína er hann hjó banvænt högg í átt að hálsi orkans. Orkinn náði á síðustu stundu að víkja sér frá en áður en hann náði fullri einbeitingu aftur fann hann fyrir gífurlega miklum sársauka í hægri hnénu, Arkidas hafði hoggið af honum fótlegginn upp að hnénu. Orkinn hnígféll niður og áður en hann skall í jörðina var Arkidas búinn að höggva hann í bakið. Á meðan á þessu öllu stóð hafði Joey verið að berjast við hinn orkann, orkinn hélt nú í hálsinn á Joey og bjó sig undir að höggva exinni sinni beint á milli augnanna er ör lenti í hnénu á honum. Hann féll niður og Joey með. Joey reisti sig síðan á fætur og stökk á orkann og reif hálsinn á honum í tætlur. Hann labbaði síðan aftur til Arkidas sem með töfrum sínum læknaði hann. Hann hélt nú áfram ferð sinni um skóga Ashenvale.
Endi