Jæja, ég og félagi minn höfum verið að spila þetta(semsagt warcraft 3 TFT mapið footy frenzy) frekar mikið undanfarið og við virðumst alltaf lenda á leikjum þar sem takmarkið hjá nokkrum spilurum sé aðeins að joina leikinn til að quitta hann svo nokkrum mínutum eftir það.


Nú, við fengum þá líka brillíant hugmynd í kollinn að búa til íslenska rás þar sem að íslenskir warcraft 3 spilarar safnast saman og geti þá tekið saman leiki í footy. Ef að það er einhver áhugi fyrir þessu þá er ircrásin #teamfooty á irc.simnet.is