Jæja, í dag fór TheAlliance í sitt fyrsta rönn í Ruins of Ahn'Qiraj, 20 manna instansið. Í stuttu máli gekk okkur mjög vel, náðum öllu nokkuð auðveldlega og clearuðum allt nema last boss.

En það sem þessi korkur var um var að ég var alveg rosalega heppinn. Það voru 4 paladinar, þar af einn úr Gief Epix. Þrátt fyrir það vann ég bókina með nýja rankinu af Blessing of Might af 2nd boss. Svo clearuðum við thrash og það droppaðist blá BoE byssa, Silithud Husked Launcher. Mjög góð byssa, og ég vann í Greed rolli með 100 að ég held. Ég lét vita af þessu og það fóru strax að streyma inn bid :p svo þegar við vorum komnir að 4. boss, væpuðum á 1% eftir að hafa pullað hann óvart, en náðum honum á næsta rönni. Af honum vann ég nýja rankið af Blessing of Wisdom. /cheer.

Ég seldi byssuna til gaurs í TheAlliance sem ætlaði að nota hana á altinn sinn, en hann keypti byssuna á 200g + 10 Enchanted Thorium Bars og einhver 2 cörd, samtals um 230-250g. Overpriced?

Varð bara aðeins að monta mig hérna, ég var alveg drulluheppinn þarna ;P vantar bara Holy Light Rank IX og þá á ég allt sem mig langar í úr Ruins og Ahn'Qiraj… þó það væri næs að fá hausinn af endabossinum, imba rewards þar.