Mestu vonbrigði sem ég hef orðið fyrir í Diablo II (ekki það að ég sé mjög vonsvikin yfir honum) voru núna í vikunni þegar ég og kunningi minn tókum okkur til og rúlluðum í gegnum Secret Cow Level (í ‘normal’ erfiðleika) á svona 20-25 mínútum. Eftir allar væntingarnar og eftir að hafa lesið um að þetta ætti að vera ýkt erfitt, þá finnst mér svona frekar klént að þurfa bara að nota eitt healing potion til að lækna Barbarian Mercenary-inn sem ég réði.

Ég var með 42 level Paladin og notaði Thorns til að byrja með, vinur minn er með 37-38 level Necromancer með Fire Golem, slatta af Skeletons og notaði Iron Maiden og Frost Spear (eða hvað sem það heitir.. hef ekki spilað Necromancer enþá).

Og, toppurinn á öllu (eða botninn) var að við fórum sérstaklega þarna inn til að finna einhverja góða hluti (sem við vorum búinir að lesa um að þarna væri að finna) en fundum ekkert nema venjulegt Magical dót. Það var kannski betra en Magical dót sem við finnum venjulega en á endanum seldum við það allt saman.

Vona að það verði eitthvað meira gamann að þessu á ‘nightmare’ erfiðleikastigi.