Ég er forvitinn að vita hvernig kite virkar. Finn voðalega litlar upplýsingar um það á netinu en það virðast flestir vera að tala um þetta. Ég veit svona tiltölulega hvað það er en ekki hvernig farið er að því og hefur tekist illa til hjá mér að hrinda því í framkvæmd.

Er einhver kite specialist hérna sem getur sagt mér, og fleirum, frá því hvernig best sé að kite-a?

Er til einhver svona kite-guide?

Önnur spurning á sama stað. Ég hef verið að horfa á Wow video á video.google.com og tek eftir því að allir eru rosa snöggir að snúa sér við og hlaupa hingað og þangað þegar þeir eru í bardaga. Það tekur mig „hálfa mínútu“ að snúa mér í 180 gráður. Ég held að ástæðan fyrir að lvl 19 óvnaði mig (lvl 31) nærri því um daginn var að ég er ekki svona lipur. Hvað geri ég?

Wating for flames…