Kvöldið góðir hálsar.

Nú er ég að fá alveg nóg af því að lesa þessa korka þessum ágæta vef.
Það er alveg með ólíkindum hvað djöfulskapurinn nær yfir menn að ganga.

Og nú spyr ég stjórnendur þessa áhugamáls, er ekki hægt að banna menn í styttri tíma ( 2-3 daga ) fyrir að koma með óþarfa niðurlægjandi athugasemdir á hvern einasta þráð sem er búinn hér til?

Er ekki hægt að banna menn lengur ef þeir halda þessum sóða kjafti og leiðindum áfram.
Menn kallandi hvorn annan hórur og þess háttar, útaf því einu að viðkomandi vildi koma einhverju á frammfæri sem hann var að sjá, einhvað að hans mati merkilegt og vildi deila því með ykkur?

Mér finnst þessar síður huga með eindæmum sniðugar, en það er virkilega þreytt að lesa hvern einasta þráð líkt og; “FYRSTUR!” eða “OLD MAÐUR” eða jafnvel “STIGA HÓRA!!!”.

Ég veit ekki með ykkur hina, en mér er svo nákvæmlega sama um þessi blessuðu stig.

Og núna varpa ég minni spurningu framm til stjórnenda þessa áhugamáls, Er ekki hægt að taka á þessu, áður en enginn nennir að skoða þetta lengur?

Kveðja,
Skeldan.