Ég lenti þessu fína Party sem ætlaði í Upper black rock spire instancið fyrr í dag. Og heppnin sem við höfðum var óhugnaleg, vægast sagt. Við erum nýkomnir inn og wildheart gauntlets droppa, heppnin byrjar. Þetta var bara byrjunin samt og eru eftirfarandi hlutir með því sem droppaði:

Wildheart gauntlets x2
Devout Belt
Shadowcraft Belt
Beaststalker Belt og
Valor Bracers

Og þetta var aðeins fyrir Rend. Á Rend vorum við nokkuð heppnir, Eye of Rend droppaði ásamt Valor Spaulders. Við flýtum okkur að The Beast og á leiðinni droppar einn pristine black diamond. slátrum The Beast, Finkle skinner droppar og ég er outrollaður… í tíunda skipti. Skinnerarnir sem höfðu Finkle's skinner rolla og ein rogue vinnur og skinnar, fær Pristine Hide of the Beast. Rétt áður en við komum að Drakkisath droppar lockbox, ég vinn þetta lockbox og var þetta það fyrsta sem ég vinn þetta run þrátt fyrir öll þessi fínu drop. Ein vinsamleg Rogue opnar þetta fyrir mig og út úr því hoppar eitt stykki Pattern: Stronghold Gauntlets (http://www.thottbot.com/?i=37808), ég var nokkuð sáttur í fyrstu en þegar ég fór aðeins að lesa mig til og sá að fólk var að kaupa þetta pattern á 2000g kom smá bros á kallinn :). Drápum Drakkisath og Valor chest og fínn skjöldur droppa(sannkallaður warrior dagur). Heildarverðmæti þessa runs: hátt í 4000g, ekki slæmt.