Ég er að verða frekar leiður á að spila þennan leik á b.net…
Málið er að ég er með 56k módem (tengdur hjá ísl) og ég er alltaf að lagga út sammt er ég með alveg meira en nógu góða tölvu til að spila leikinn. Ég lagga út svona í næstum öðrum hverjum leik! Þetta er að verða svolítið pirrandi.
Þetta var ekki alveg svona lélegt til þegar ég var að byrja að spila leikinn en þetta verður bara verra og verra því oftar sem ég spila, hvernig sem á því stendur.
Ég bjó til nýjan account og eftir nokkra leiki var disc. recortið mitt orðið 5 leikjum meira enn wins og leit ekkert út fyrir að ætla að lækka neitt!
Er ómögulegt að spila þennan leik á 56k módemi eða gildir þetta bara um mig?