ég var að kaupa mér WOW og allt virkaði fínt, leikurinn komin inná tölvuna og búin að gera account. eins og kanski flestir ykkar kannast við þá þarftu að byrja á að ná í fullt af update drasli, og það virkaði þannig hjá mér að ég fór inní leikin og skrifaði account name og password og þá kom svona loading updates og svo þegar það var búið kom svona restart takki og þá fór maður úr leiknum og það fór eitthvað dæmi í gang þar sem var verið að installa update draslinu eða eitthvað. afþví að þú getur bara downloadað einum update pakka í einu þá þurfti ég að gera þetta nokkuð oft, alveg eins og ég lýsti hér að ofan….en nú kemur það sem ég lenti í veseni, þegar ég ætlaði að fara inní leikin í fjórða sinn og var að skrifa account name og passwordið þá kom svona eins og ég væri að skrifa það vitlaust…ég var alveg 99% viss um að ég hafi verið að skrifa það rétt en ég prófaði aftur nokkrum sinnum og svo á endanum fór ég inná síðuna hjá þeim og gerði eins og ég hefði gleymt passwordinu og þá var ég beðin um að skrifa account name og ég gerði það en þá kom bara að þetta account name væri ekki til…ég er nokkuð viss um að ég hafi skrifað account name rétt, enda er það einfaldlega bara nafnið mitt, og ég var búin að nota þetta account name þrisvar sinnum áður þegar ég var að ná í update pakkana. þetta er bara eins og accountinu mínu hafi bara allt í einu verið eytt

vona að þið getið hjálpað mér eitthvað eða bent mér á hvar ég get fengið hljálp.