Ég var nú bara í góðum fíling í wow áðan þegar allt frosnaði hjá mér í leiknum og ég þurfti að restarta tölvunni. Svo þegar ég ætla að fara í characterinn minn aftur þá kemur bara “nick has already been taken”. Ég kíki þá á serverinn (Burning Blade) hjá vinum mínum og þar er characterinn minn ennþá inni en það var þá bara draugur. Hann er búinn að vera inni núna í nokkrar klst. og er ekkert á leiðinni að fara. Er búinn að reyna að ná í GM á fullu en ekkert gengur og senda þeim póst.
Allavega, ef þið þekkið einhvern GM eða vitið um á Burning Blade þá myndi ég verða mjög þakklátur ef þið gætuð sagt honum/henni að kicka Indie :)