Nú er maður búinn að maxa út alchemy og herbalism skillana. Svo ég ætla að reyna að finna eins mikið af uppskriftum og ég get, þ.e. sem munu gagnast mér og guild memberunum eitthvað af viti.

Mig langaði að spyrja á svona spjallþræði hvort að fólkið viti um einhver quest þar sem góðar alchemy recipes eru í verðlaun eða jafnvel einhverja mobs/bosses sem droppa svona með ágætis drop ratei. Og svo náttla einhverja horde vendors sem selja uppskriftir. Þá er ég helst að tala um góðar uppskriftir sem þurfa meira en 200 í alchemy, 150 sleppur svo sem alveg. Endilega nefnið bara allt sem ykkur dettur í hug.

Og já, ég er lvl 44 shaman.

Hérna er listi af potionum sem mig langar virkilega að kunna en hef ekki ennþá fundið uppskrift að =)

(Lesser) Stoneshield Potion
Magic Resistance Potion
Invisibility Potion
Limited Invulnerability Potion
Mighty Rage Potion

Ég veit að margar af þessum uppskriftum hafa lousy drop rate en droppa víðs vegar um heiminn, en ef þið vitið um einhverja staði þar sem hægt er að fá góðar recipes, látið í ykkur heyra. =)