Ég spila nú shaman og var ég að lesa yfir það sem á að koma inn í leikinn eftir næsta patch(sem kemur 18. eins og segir í titlinum). Og þar sem ég er Shaman yfir lvl 30 þá var ég nokkuð ánægður að sjá þetta yfirlit yfir patchinn, á örugglega eftir að gera marga ánægða og jafnvel líka óánægða.
Línan sem ég las var: Reincarnation - No longer causes resurrection sickness.

Þetta finnst örugglega öllu “shamönum” gaman að sjá, en alveg örugglega ekki þeim sem spila alliance. Mér finnst þetta vera svolítið mikið overpower, en samt stuð að hafa þetta. Eftir þennan patch mun ég geta resurrectað mig á 40 mín fresti án nokkurs penaltys.

Ég varð bara að deila með ykkur þessari ánægju, en þessi patch á að vera nokkuð stór. Þið getið séð meira um hann hér:

http://wow-europe.com/en/patchnotes/patch-07-03-2005.html

Inn koma líka ný flight paths, samt bara í Kalimdor. Svo koma líka svokallaðir ‘Meeting stones’ sem auðvelda spilurum að koma sér í grúppu fyrir instance/dungeons. Svo er einnig eitthvað glænýtt dungeon sem á að vera eitthvað magnað. En þið getið lesið um þetta allt á linknum fyrir ofan, have fun! =)