Ég byrjaði sem Tauren shaman á Warsong servernum í gær, og var það bara að ganga vel. Nema þegar ég ætla að fara í leikinn í dag og logga mig inn, þá er 190 manns í bið að komast inná serverinn. Ok, ég læt mig hafa það… svo þegar ég er kominn niðrí svona 50-60 manns í bið, þá dett ég út og fer inn aftur og þá er ég nr. 200 í biðröðinni. Hafa aðrir lent í þessu sem hafa verið að fara á of fjölmenna servera? Þó allir félagar mínir séu á þessum server, segi ég bara nei takk. Ég ætla sko ekki að bíða eftir að komast í leikinn, þegar ég er við tölvuna og vil fara í hann.

Þannig ég var að spá hvort það væri einhver server sem einhverjir Íslendingar væru á sem væri annað hvort low populated eða medium. Endilega látið í ykkur heyra. =)