Nú segjast allir ætla að velja síðasta serverinn í röðinni, og virðast allir 100% vissir um að síðasti serverinn á listanum sé sá sami hjá öllum. Ég man ekki alveg hvernig þetta var, hvort maður gat flokkað þá með því að ýta á Name eða Type eða eitthvað svoleiðis. En ef það er hægt legg ég til að allir flokki serverana eftir stafrófsröð og velji svo síðasta serverinn. - Þeir sem ætla á PvP, velji síðasta PvP serverinn í stafrófsröðinni og svo sama með PvE og það.

Væri nefnilega svolítið ruglað að fara að velja síðasta serverinn þegar allir eru kannski með einhvern rugl lista, sem er bara í random röð.

En eins og ég las á korki hérna fyrir neðan, þá geta örugglega Íslendingar ekki komist upp með að velja allir sama serverinn. Þannig, kannski það fari bara sem flestir inn á sama. Það væri örugglega mjög gaman, að geta grúppað saman með einhverjum Íslendingum.