Ég var að byrja að spila aftur Diablo 2 LoD og ég átti ekki neitt og byrjaði aftur en bara á USEast en ég var á USWest.
Svo sá ég bara um daginn eitthvað screenshot og sá þar nafn á einum gaur sem að var á vinalistanum mínum og ég byrja akkánt á USWest og adda honum og byrja að tala við hann og hann gefur mér helling af dóteríi til að ég geti byrjað smá þannig að ég ákveð að vera bara á West og svo hættir þessi gaur og hann átti fullt Tals með Isted Tals orb og gaf mér það.
Hann átti reyndar líka fullt IK og ætlaði að gefa mér en ég fór út áður en hann kom aftur inn því hann þurfti að fara.

Svo bara okei ég held áfram svo sé ég leik sem heitir Free eða eikkað álíka og fer inn í hann því að það var lvl 99 sorceress sem hét MF eikkað og svoleiðis.

Ég fer inn og gaurinn kastar allt í einu bara Enigma, Shako, 5 Fire GCs (ég er nebbnilega Meteor galdrakvendi), 2 Ist Rúnum, einni Ohm rún, thundergod, 3 20 Life SCs, tals ammy og armori, Occy og helling af bara mögnuðu sjitti.

Ég var næstum búinn að kúka á mig og reyndi að ná sjittinu á undan gaurunum sem að voru þarna líka og náði langflestu, allaveganna miklu meira en þeir ég missti bara af Ber rúnu sem að var það eina sem að var varið í sem að ég missti af.

Ég hafði skipt einhverju lélegu dótí á móti Stormshield en gat ekki notað hann með sorcunni minni og átti engann annan gaur en Enigma gefur tonn í strength og ég gat notað hann núna.

Þannig að ég varð bara filthy ríkur náungi á nokkrum dögum.

Sorcin mín er núna með:

Occy
2 Soj
Enigma
Stormshield
Shako með Um rún í(hann droppaði því þannig)
Thundergod (á eftir að reyna að ná í Arachnid dæmið)
War Travs
Chance Guards með 39 mfi

Og gæti kannski látið Ist Rúnirnar í Ali Babann minn og notað Rím skjöldinn sem að hann gaf mér.