Ég tók þátt í þessu NGA tournament sem var haldið yfir helgina. Þetta var mjög óskipulagt og heilmikið vesen því fólkið sem átti að sjá um þetta komu ekki og var vef vandamál og fleira. En þrátt fyrir öll vandamálin leystist þetta í endanum, þrátt fyrir að nokkrir voru farnir. En í miðju tourney tókum við eftir því að Einar var alltíeinu kominn í riðilinn, hann var ekki skráður. Við hlógum að þessu og hann ákvað bara að spila, og lenti gegn 4k.Zeus, sem endaði með að vinna East. Ég lenti í 7-12'a sæti, eða hvernig sem það er, á East. Svo spila bestu tveir á West vs bestu tvo á East um 1-4 sæti.
En það var mjög asnalegt fyrirkomulag á þessu. Þetta var best of 1 og ekkert losers bracket. T.d. lenti Bei gegn ShowTime.WeRRa í fyrsta roundi, tapaði, og komst því ekki áfram.
En þrátt fyrir allt þetta vesen fannst mér mjög gaman, og við fengum líka að observa heilmikið.
En allavega ég ákvað að uploada nokkur replay af mér til að lífga WC3 samfélagið aðeins við ^ ^ . Ég uploadaði alla NGA leikina sem ég tók og leikina sem við observuðum í NGA, sem höfðu nokkuð góða spilara, m.a. ShowTime.WeRRa. Ég uploadaði líka nokkur ladder replay þar sem ég spila á malt, sem ég er eiginlega hættur að spila á útaf losing streak, disc, og svoldið betra ping á europe, sem ég er farinn að spila 1v1 á.
Ég vona að einhverjir njóti góðs af þessu, og hvernig ætti að spila/spila á móti human í TFT 1.12.

Þið getið náð í replayin hérna:
http://demos.skjalfti.is/download.php?id=650


Drake | PowerPiLL