Ok, í glærkvöldi þá fór ég í warcraftIII, búinn að læra allann daginn og tilbúinn til að spila skemmtilegan 2 on 2. Leitarvélin fann leik óvenjuhratt og allt í fína með það, svo þegar ég var kominn inn í leikinn datt mér í hug að prófa að byggja barracks, warmill og burrows fyrst (ekki hero alveg strax), því það hefur verið svona vinsælt þessa dagan, og hefur virkað vel. Ég byrja að byggja en þá segir mótspilarinn, give me unit control og ég neita að sjálfsögðu (ég er ekki búinn að eyða pening í leikinn og er að eyða downloadi til að einhver gaur útí bæ geti stjórnað fyrir mig!). Þá byrjar hann með einhverja sögu um foot man icon og einhverja clan umsókn og að hann vilji ekki að einhver helvítis núba hálviti (stupid n00b asshole) eyðileggji það fyrir sér. Ég svaraði þessu með því að segja að mér væri alveg sama um clan umsókn einhvers gaurs sem væri svona leiðinlegur og að hann kæmist hvort sem er ekki inn í klanið því hann væri svo dónalegur og leiðinlegur. Þá byrjaði hann eitthvað að öskra (svona með stórum stöfum) á mig og segja að ég væri fáviti og eitthvað svona. Svo fór hann að gefa mér skipanir og eitthvað.
Ég fór ekki, en ákvað í staðinn að tryggja það að þetta fífl fengi ekki icon og gæti farið með peon merkið sitt góða að spurja hvort hann mætti komast komast inn í clanið, ég byggði tauren cieftain (sem fyrsta hero) byrjaði svo að maxa peona og catapult í rólegheitunum og lét capapultin skjóta niður öll trén hjá honum og svona…
Auðvitað tapaðist leikurinn en VÁ! hvað sumir geta verið leiðinlegir í þessu LEIK.

Kv.
Kreoli

P.S. ég ER n00b í þessum leik, en samt er enginn ástæða fyrir því að vera með dónaskap og leiðindi við mann!<br><br>—————————————————————————————-
“Nörd er bara annað orð yfir gáfað fólk sem var fundið upp (það er að segja orðið) af afbrýðisömum heimskingjum” :)