Ég eyddi dágóðum tíma í að finna eitthvað gáfulegt og snyrtilegt til að segja hér í fyrsta pisli mínum sem stjórnandi, en ég er greinilega ekki nógu öflugur fallbyssukjaftur til að finna eitthvað gáfulegt :)

Ég vill þá bara byrja feril minn hér á því að hefja myndakeppni úr einhverjum af leikjum blizzard manna.

Í sameiningu við Egth höfum við ákveðið að hafa þemað í þessari keppni bardagaþema.
Semsagt við viljum endilega hafa myndirnar með því sniði að aðalatriði myndarinnar sé í bardaga. Það getur verið mannvirki sem er verið að gera árás á. Bardaginn við Diablo, PvP úr World of Warcraft eða bara zerg úr Starcraft.

Reglurnar eru ekki margar í keppninni en við skulum hafa smá ramma utan um þetta.

- Það má eiga við myndir með myndvinnsluforritum svosem Photoshop eða hið gallharða og flókna paint forriti.
- Hver og einn má senda inn hátt í 3 myndir í keppnina.
- Myndin verður að vera eftir ykkur/þig
- Það má teikna myndirnar eða mála , jafnvel gera leirfíkúrur sem það má svo mynda.
- Ef það má svo heppilega til að einhver eigi módel sem hafa verið gefin út sem blizzard módel má nota þau í uppstillingu við myndagerð.
- Við skil á myndinni þarf hún að vera merkt [Nafn] - Keppni.
- Myndakeppnin stendur yfir í viku frá og með núna.

En eins og titillinn á greininni segir þá eru verðlaun í boði. Þau eru ekki af verri taginu, en ég útbjó kubb hérna til hægri sem gengur undir nafninu /blizzard hetjur.
Þar fá að trjóna 3 stigahæstu hugararnir í myndakeppninni þar til næsta keppni verður gangsett.

Það má eiginlega segja að þessi keppni sé eins og arenas í WoW. Þeir sem eru 3 hæstu fá að vera á listanum hér til hægri og fá titla þar að auki.
Semsagt = Flott mynd = Stig = Nafn á lista með flottum titli (Sem verður í lit!) = Legend… dary.

Titlarnir í boði í þessari fyrstu lotu myndakeppnanna verða

1.Blizzard hetjan [Nafn]
2.[Nafn] af /blizzard
3.[Nafn] af /blizzard
__________________________________________________________

Gangi ykkur vel og megi besti hugarinn vinna :)
Pladin1one!!11one!!