Kanski maður ætti að fara hugsa um að geyma einhverja góða gems þangað til að expansionið kemur út, því að í expansion pakkanum koma inn magical og rare items sem verða einnig socketable.
Síðan verður líka nýjar tegundir af “gems” eða rúnir réttarasagt, í stað þess að setja gem í hlutina verður líka hægt að nota rúnir til að grafa í vopnið sem mun gefa því einhverja eiginleika.
Ástæðan fyrir því að hægt verður að setja gems og rúnir í magical og rare items í expansion-inu er líklega vegna þess að gems eru orðnir nánast úreltir þegar maður er kominn á hærri level (clvl 55 og hærra) því að þá er maður komin með vopn, magical, rare eða unique, sem eru að gefa meiri og betri eiginleika en maður getur fengið útúr vopni með gems í.