The Secret Cow level OK, áður en ég byrja þá ætla ég að segja að ég er að fara að skrifa um belju-borðið í DIABLO II leiknum en ekki WoW leikinn eða einhverja aðra Blizzard leiki, skilið? OK, gott:D

LEYNILEGA BELJU-BORÐIÐ

AÐ KOMAST Í lEYNILEGA BELJU-BORÐIÐ

Til að komast í LBB (Leynilegabeljuborðið verður nú nefnd sem: LBB) verður þú fyrst að drepa Baal(endakallinn, bróðir hans Diablo). Eftir að þú hefur drepið hann(Og búinn að fullvissa þig um að Quest-ið sé búið) Þá getur þú komist í LBB.

Þú þarft að vera búin(n) að finna '' Wirt's leg'' úr '' Tristram''(Þar sem '' Deckart Cane'' var fangi) og passa að vera ekki búin(n) að´setja neina demanta, rúnir eða hauskúpur í það, þannig að þegar þú ætlar að komast í LBB og ert að fara að drepa Baal þá skaltu hafa það í huga að fara fyrst til ‘'Tristram’' og sækja þér ‘'Wirt’s leg''-ið.

AÐ OPNA PORTALIÐ

Farðu í '' Rouge encampment''(Í fyrsta bænum, þar sem Akara Charsi og Kashya voru, Act I) og settu eitt '' Tome of Town Portal'' og Wirt's leg-ið í litla kassann þinn(The Horadric Cube) og ýttu á ‘'Transmute takkann’', þá á að opnast svona rautt Portal (eins og þegar maður er að fara að bjarga Deckart Cane í Tristram, þannig rautt, eða með öðrum orðum allveg eins og Town portal, nema að það er rautt:S), Ef að þú heyrir kallinn/konuna þinn/þína segja ‘'I can’t do that'' þá ertu greinilega að gera eitthvað vittlaust, vertu viss um að þú sért algjörlega búin að KLÁRA ‘'Baal-questið’', að þú sért búinn að setja réttu hlutina í Kassann og að þú sért að Transmute-a þetta á réttum stað. Ef að þú villt ekki nota Town Portal bókina þína(sem er líklagasr næstum því full) þá get ég sagt ykkur það núna, að Town portal bókin þarf EKKI að vera full til að þetta virki, þannig að ef að þú villt ekki nota fullu bókina þína þá geturðu bara keypt eina næstum því tóma bók hjá Aköru á svona 500 kr.

Hérna koma myndir til að hjálpa:

http://www.battle.net/images/battle/diablo2exp/images/quests/cow01.jpg

Til að sína þér hvernig á að transmute-a.

http://www.battle.net/images/battle/diablo2exp/images/quests/cow02.jpg

Til að sína þér hvernig Portalið lítur út.

SMÁ LBB RÁÐ

LBB getur verið mjög erfitt eða mjög létt en það fer eftir Skillsinum þínum og öllu því. Það fyrsta sem þú munt taka eftir er að þáð eru MJÖG MARGAR kýr þannig að það er hvorki sniðugt né gáfulegt að skoða sig um bara til gamans, því að þúm munt strax vera umkringd(ur) af helling að beljum, svo margar að þú gætir ekki einu sinni talið þær.


Reyndu að vera allann tímann á sama svæðinu, þar til að þú hefur drepið um það bil allar kýrnar í kringum þig, reyndu semsagt ekki að hlaupa mikið þangað til að beljuhópurinn í kringum þig er mest allur dauður.

Leiðtogi kúnna er ‘'The Cow king’' hann hefur mátt yfir eldingum(Lightning Enchanted), ef þú nærð að drepa hann þá gæti hann misst eitthvað sérstak og gott(vopn og brynjur og svoleiðis). Það getur orðið erfitt að þekkja hann í sundur frá hinum kúnnum því að hann er frekar líkur þeim, þú munt vita að þú hefur fundir hann þegar hann kastar frá sér eldingu.

Hérna koma myndir til að hjálpa:

http://www.battle.net/images/battle/diablo2exp/images/quests/cow04.jpg

Necromancer nýkominn inní LBB

http://www.battle.net/images/battle/diablo2exp/images/quests/cow03.jpg

Hérna koma allar kýrnar í kringum hann.

http://www.battle.net/images/battle/diablo2exp/images/quests/cow05.jpg

Og þarna er hann allveg að kála Beljukónginum.


Vonandi gleimdi ég engu, en ef svo er þá birti ég þá seinna:p