Contrast leitar af spilurum Daginn kæru WoW spilarar.

Markmið þessarar greinar er að fá fleiri horde íslendinga til að migratea hingað á Grim Batol og joina íslendinga guildið Contrast.

Við erum um 20 lvl 70 mains í guildinu og erum að runna eina Karazhan groupu atm. Við raidum 3x í viku og þá frá 20:00 - 00:01 á íslenskum tíma en það getur komið þó fyrir að við raidum 4x en það er þá undantekning.
Erum ekki að ná að fylla nóg af hverjum class í aðra Karazhan raid groupu eða byrja í Gruul og skiptum við oft inn mönnum og út eftir þörfum til allir fá reynslu og ekkert loot fer til einskis. Höfum tekið Attuman, Moroes, Maiden, Öll opera events, Curator, Shade og náð Prince í best try 3%. Þar sem allir í guildinu vilja ólmir hafa þetta íslendinga guild og byrja runna 2 groupur í Karazhan og byrja í 25 manna raidin þá þurfum að recruita fleiri.

Vill taka það fram að það er ekki auto guild invite fyrir að vera íslendingur, þurfið að ganga í gegnum trial progress.

Hvað þarf til að joina guildið ?

Hafa lvl 70 char
Vera eldri en 18
Geta raidað frá 20:00 - 00 / 01
Vera með mic og ventrilo
Redda sjálf/ur pots fyrir raid
Að vera tilbúinn til að raida og progressa með okkur þó svo það geti valdið miklum dauða og viðgerðakostnaði.
Skilja að það er ekkert víst að þú myndir komast í öll raid (skiptum inn/út)



En þá er það serverinn, það er Grim Batol og vilja margir meina að þetta sé með betri pvp serverum, ekkert queue og ekkert lag.


Ef þið hafið áhuga þá endilega sækja um á www.contrast-guild.com


Fyrir hönd Contrast,

Construct ( Guild Master )
Alcasan ( Officer )
Skari ( Officer )
//Skari