Sælir hugarar,

Núna er tíminn kominn sem margir eru að bíða eftir en það er TBC.
Wow leikurinn er að breytast mikið og í kjölfarið er kominn tími til þess að breyta guildinu og langar mig að deila þeim breytingum með ykkur sem eru að spá í að joina Shadow Of The Past

Vill ég kynna Secrets Of The Past sem verður side guild hjá okkur fá allir íslendíngar sem eru level 60- invite í það og strax í ding 60+ gratz fáið þið svo invite í Shadow Of The Past.

Shadow Of The Past verður bara fyrir main chars sem eru 60+. Þetta er gert til að þétta hópinn í guildinu og að koma í veg fyrir að hver sem er komist í guildið þar sem við erum bara að leita að alvöru players í Shadow Of The Past. Allir fá samt invite í Secrets Of The Past, eina sem þarf er að vera íslendíngur og vera ekki með stæla við guild mates.

Kynnum við líka Rank system í guildinu sem fer í gang. Þar sem Shadow Of The Past er fullt af frábæru fólki sem vill spila undir sama fána ætlum við að setja niður rank kerfi í stað þess að splitta þessu niðrí nokkur guild. Kerfið verður eitthvað á þessa leið:
T.d. rank 1 verður mjög gott balance á 30 players sem verður valið saman eftir clössum og spila þeir saman. Rank 2 er sama saga og svo bætum við rönkum í guildið eftir hvað margir eru í guildinu ásamt því að það verður sér rank fyrir þá sem vilja bara vera í PvP.
Það verður líka pro-player rank í guildinu fyrir þá sem eru bestir af þeim bestu íslensku wow players í leiknum og stefnan með því ranki er að ná sem lengst í PvE progress á sem stystum tíma.
Ef þú heldur að þú hafir það sem þarf til að joina þetta rank þá verðuru að vera með allt á hreinu, t.d. mæta með pots og vera alltaf rdy í wipes.
Þetta rank er fyrir þá sem hafa áhuga á að vera með í einu af besta wow guildinu í leiknum og leggja sitt af mörkum í að bæði koma því þangað og halda því þar.

Þar sem guild chat hefur oft verið lagt undir sig af 10 ára strákum sem leiðast mikið heima hjá sér tökum við up strangar reglur með guild chat. Þetta er gert til að allir fá að njóta sín í wow án þess að hlusta á einhvern sem er að skrifa á guild chat um orð sem páfagaukurin hennar ömmu sinnar sagði í gær.

Allavega þetta eru fyrstu breytingarnar sem eru á daskrá þessa dagana í Shadow Of The Past og verða fleiri reglur og breytingar tilkynntar á heimasíðunni okkar (sem er bara fyrir members btw).

En viljir þú verða hluti af stærsta og besta íslendinga guildi í World of Warcraft þá erum við alltaf að leita að góðum og skemtilegum players og stefnan er sett að verða með betri guildum í heiminum í wow. Við erum á Skullcrusher servernum (europe, horde side).
Sendið mér eða einhverjum member í Shadow Of The Past tell til að fá invite. Ekkert flóknara en það.

En hvorts sem þið komið að spila með okkur eða ekki þá vona ég bara að allir skemmti sér sem best í The Burning Crusade™.

Kveðja Bloodsucke