Ég hef lent í því að Barbarianinn minn hefur fest sig í of stórum hóp af skrímslum og kemst því ekki neitt.Þá hef ég notað skillið Howl sem gerir það að verkum að skrímslin flýja, eða svo ég hélt….
Það var þannig að ég fór í Pandemonium fortress og ætlaði að howla aðeins en ekkert gerðist og þar með var karlinn minn buffaður á staðnum. Ég sendi inn póst á Blizzard, diabloplanet og diabloii og fékk reply frá Diabloii sem sagði að Howl skillið virkaði með því skilyrði að karlinn minn væri í hærra leveli og að skill levelið þarf að vera í ákveðnu leveli til að virka gegn skrímslum í hærra level(kallinn er í level 20). Þeir minntust líka á að sum skill hjá Barbarian og Amazon létu svona.

Munið viðvörunarorð mín!!!