Ókei, ég keypti leikinn og fór í hann í von um að hann yrði alveg megaskemmtilegur. En ég verð að játa að mér finnst ósköp leiðinlegt að grafíkin hefur ekki breyst það mikið. En hins vegar er gaman að því hvað maður fær mikið af vopnum en því miður getur maður ekki haldið þeim öllum og verður að selja hin en þá fær maður hins vegar annað í staðinn: gull! Sem er ekkert verra! En allaveg þá finnst mér frekar gaman í þessum leik og intro-in eru alveg stórkostleg. Mér finnst að þeir ættu bara að gera heila mynd með sömu tækni og þeir notuðu í intro-in!