Sælir.

Núna opnaði ég kubbinn “Framför Íslenskra Guilda”. Þar mun einhver aðili frá einhverju Íslensku guildi setja inn fréttir um ný afrek þeirra.

Guild sem komin eru:

Föruneytið.

Ef þið hefðuð áhuga að fá guildið ykkar inn, þá þurfið þið að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

* Kunna á BB Kóða-kerfi Hugi.is
* Vera fulltrúi guilds, sem er með þónokkuð af íslendingum í því.

Þetta er gert til að koma öllum fréttum og fregnum á þennan eina stað svo það verður líka einfaldara að finna þetta aftur.

Ef þið fáið aðgang á þetta, þá vill ég að þetta verði sett upp svona:

“Titill”
Nafn Guilds, og fréttar. Til dæmis: “Föruneytið: Ragnaros down”.

“Meginmál”
Vandlega sett upp, með lista yfir drops (Ef einhver), myndir, video (ef einhver). Allt sem þú vilt sjá þegar þú ert að sjá einhverjar svona fréttir.

Svo að sjálfsögðu hlekk á síðuna ykkar.

Ef þið hafið áhuga, sendið mér skilaboð í gegnum Huga eða tölvupóst.

Takk fyrir.

P.S. Vill minna á keppnina. Allt of fáar myndir komnar inn.