Halló.

Awesome Intentions er nýtt guild sem var stofnað á Executus núna á dögunum. Við erum um það bil 10 meðlimir, þar af 5 á 60, og við erum að leita að fólki til þess að ganga til liðs við okkur. Það ber fyrst að taka fram að við erum á horde hliðinni, og þar af leiðandi getum við ekki tekið inn alliance meðlimi (sorry):.

Executus er medium PVP server og hingað til hefur reynsla mín af servernum verið frekar góð. Ég veit ekki með alliance hliðina en horde hliðin virðist í það minnsta vera eitthvað viti borin.

Við leitum eftir fólki sem hefur áhuga á bæði PvP og PvE. Stefnan er sem sagt að fara í ZG og AQ um leið og við höfum nóg af fólki í þessar instances. Þótt ég segi sjálfur frá þá erum við frekar vinalegt lið og andinn er alveg fjandi góður.

Ef þú hefur áhuga á að ganga til liðs við okkur, hvort sem þú ert fyrir á servernum eða ætlar að færa þig yfir af öðrum þjóni, þá eru tvær leiðir til þess að hafa samband við okkur:

a) Senda mér eða Gizza (nf. Gizzi) skilaboð.
b) Hafa samband við eftirfarandi officers í leiknum: Garotha, Jhuuzum, Hatesphere og Bjoggz.

Með fyrirfram kveðju,
Garotha
LV60 Undead Rogue
Executus