Jæja, eins og flestir vita þá var Blizzard ‘frekar’ á eftir áætlun með að gefa út diabloII þrátt fyrir að strax og diablo ‘1’ hafði verið settur á markað var strax farið að ræða um að búa til DiabloII. Sjálfur beið ég eftir þessum leik með eftirvæntingum en þrátt fyrir það verð ég að segja að ég hafi orðið fyrir dálitlum vonbrigðum þegar ég keypti mér hann því grafíkin var ekki eins og ég bjóst við. Leikurinn hefði einnig mátt vera ‘fjölbreyttari’. Jæja… maður klárar hann í normal og nennir ekki að fara að gera það sama ‘aftur….aftur og….aftur’.
ætli aukapakkinn komi á réttum tíma ?? Væri endilega til í að fá smá ‘reply’ við þessu eða jafnvel SURVEY hérna á diablo2 á hugi.is hvort þið treystið blizzard til að skila af sér pakkanum á skikkalegum tíma :)

Kv: Genuine aka Genuine Barberian :) hehe