Tímarnir breytast Ég átti aldrei Diablo, ég byrjaði bara að spila Diablo II. Um helgina keypti ég mér hins vegar Diablo, BestSeller series dæmi eitthvað. Ég er nú ekki búinn að spila hann mikið en hann er mjög svipaður hinum, II er bara töluvert fullkomnari (hann er svo svipaður að það er sama stef undir!).

En mikið hafa nú tímarnir breyst, system requirements eru all svakalega lágt!

Pentium 60mhz (ég held að ég sleppi með mín 1000:)
8mb RAM (já ég held að mín 256 sleppi líka þar)
Tveggja hraða geisladrif!
Það er ekki einu sinni minnst á hversu mikið pláss maður þarf, en ég komst að því að það voru heil 10mb :)

Að lokum er tvennt sem mig leikur forvitni á að vita, er ekki hægt að hlaupa og hvað er Spawned Diablo? (Það er valmöguleiki sem kom í byrjun, instal Diablo og instal Spawned Diablo)
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _